Ferdinand og Delores

Angistin brýtur sér leið
inn að hjartarrótum
Sársaukinn togar í tárin
og ég missi andann um stund

Ég læt hugann reika
eitt dýrmætt augnablik
Ég brosi yfir ríkidæmi minninganna
sem hlýja mér í andartak
svo fell ég hratt
á steinsteyptan raunveruleikann
og brýt öll andleg bein

Ég þráði svo heitt
að laga öll ykkar mein
Ég þráði svo heitt
að stoppa tímann
Svo grét ég frá mér
tilfinninguna
um tækifærin öll

En tárin stoppuðu ekki neitt
tárin löguðu ekki neitt
þrátt fyrir
endurteknar bænir
og ákall til þeirra
sem eiga að hlusta
en þá heyrðist ekkert
í saklausri þögninni

Í móðu tára minna
ég sé móta fyrir þér
dökk augun blíð
hjartað góða og hreina
æðruleysið uppmálað
og brosið þitt bjartasta

Himnarnir gráta
í dag fyrir þig
dísin mín eina
svo viðkvæm og ljúf
íðilfögur og friðsæl
eins og titrandi lauf í vindi
eins og lambið ljúfa
þú komst með vorið með þér

Samstíga og samhuga
Skilyrðislaus ást
Svo tær sú tilfinning
Sem þið saman áttu
Frá vöggu til grafa
Alla leið
Saman ætíð, alltaf

Það syrgir mig því mest
að sjá ykkur bæði
uppgefin og þrotlaus
sem skuggar
af glaðværðum sálum

Þið biðjið um líkn
Hve einlæga sú bón er
sem er erfiðara að skilja
en ykkur að kveðja

Með lífið í höndum
með ykkur í fanginu
með tárin á andlitinu
friðsælu blómin mín
nú er ykkar haust

ég þakka ykkur
fyrir gleðina sem líf ykkar gaf mér

Yndin mín einu
mi corazón

Ferdinand 18.08.1995-21.04.2008
Delores 25.11.1996-21.04.2008


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Elsku Steinunn okkar    Þetta er dásamlega fallegt ljóð um vinina okkar sem við kvöddum í gær og sýnir og sannar að þú ert að verða fullþroska listamaður á ljóðræna vísu     mamma og pabbi

Sigurdur G. Steinthorsson (IP-tala skráð) 22.4.2008 kl. 09:31

2 identicon

Ótrúlega fallegt sem hjá þér elsku Steinunn. Ferdinand og Delores gáfu okkur mikla gleði og ást á lífsleið sinni, margar góðar minningar sem lifa áfram. Takk fyrir að skrifa svona fallega um þau. Kveðja Berglind systir.

Berglind Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 22.4.2008 kl. 22:01

3 identicon

Kæra Steinunn og fjölskylda.

Innilegar samúðarkveðjur til ykkar allra vegna fráfalls Ferdinands og Deloresar.

Fallegt og hjartnæmt ljóðið þitt.

Kærar kveðjur Auður, Geiri, Auður Sif og voffar.

Auður Valgeirsdóttir (IP-tala skráð) 22.4.2008 kl. 23:18

4 identicon

Elsku Steinunn.

Ástarþakkir fyrir þetta fallega ljóð um okkar elskulegu fjórfættu vini sem veittu okkur ómælda gleði í tæp 13 ár. Ég veit einnig að þetta hefur verið ansi erfitt ferli fyrir þig  að ganga í gegnum með þau tvö, sérstaklega Ferdinand sem þú tókst undir þinn vendarvæng og þjálfaðir upp eftir erfiða dvöl í Hrísey og náðir frábærum árangri með hann. Þið tvö vissuð alltaf hvað annað ykkar hugsaði, og á hundasýningum sýndir þú þau bæði með frábærum árangri sem við öll eigum góðar og fallegar minningar um. Ferdinad og Delores voru alltaf sama, á sýningum sem og heima þar sem þau vildu helst kúra sem næst hvort öðru. Þessi síðasti dagur þeirra saman var dagur sem aldrei gleymist. Blessuð sé minnig þeirra.    Love mamma

kristjana Ólafsdótir (IP-tala skráð) 9.5.2008 kl. 22:10

5 identicon

Ofboðslega fallegt ljóðið þitt Steinunn mín!

Þú og yndislega fjölskyldan þín eigið samúð mína alla!

Ég get rétt ímyndað mér hvað þetta hefur verið erfitt enda þú og Ferdinand glæsilegt team!

Bestu kveðjur og knús,

Anna Francesca

Anna Francesca Rosudottir (IP-tala skráð) 11.5.2008 kl. 11:47

6 Smámynd: Lovísa

Innlitskvitt

Góða helgi

Lovísa , 24.5.2008 kl. 11:46

7 identicon

Sæl, Steinunn

Helga heiti ég og er vefsíðustjóri Tíbet Spaniel deildarinnar. Mamma þín benti mér á síðuna þína og ljóðið sem þú skrifaðir og ég var að velta því fyrir mér hvort ég mætti setja þetta fallega ljóð inná deildarsíðuna. Er að útbúa þar þráð sem heitir minningar.

Endilega láttu mig vita

Samúðarkveðjur,

Helga  

Helga Kolbeinsdóttir (IP-tala skráð) 26.5.2008 kl. 19:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband