Mar-grét

Þögul og þögnuð tárin
hafið grét og perlan fæddist
úr sorg fæðist gleði
og fegurðin brosir breitt

Í árdagsroða
fæðist sólin á ný
og gefur okkur tækifæri
á að sjá og trúa

Á örlaganna leið
sjáum við myndir
af spurningum
svo teiknum við svörin
í sandinn og skýin
og vonum að vindurinn
hvísli svarinu til mín
og hjartað viti

að allt er hægt!!!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Pétur Björn Jónsson

skemmtileg svona kominyfirerfiðastahjallann pæling hjá þér

Pétur Björn Jónsson, 28.2.2008 kl. 21:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband